Um okkur

Reynsla, fagmennska og lausnir á einum stað

MJ Flísalausnir er traust verktakafyrirtæki með yfir 15 ára reynslu af fjölbreyttum framkvæmdum fyrir einstaklinga, fyrirtæki, húsfélög og sumarhúsaeigendur.


Við tökum að okkur allt frá flísalögnum, múr- og smíðavinnu til málningar, þakviðgerða, veggjauppsetningar og heildarendurbóta. Þegar verkefnið krefst fleiri sérfræðinga sjáum við um að koma rétta fólkinu að verkinu og samræma framkvæmdina. Þannig færð þú einn tengilið og einfaldara ferli frá upphafi til enda.



Við leggjum áherslu á vandaða undirvinnu, faglega ráðgjöf og nákvæm vinnubrögð. Hvert verkefni hefst á góðu samtali þar sem farið er yfir þarfir, hugmyndir og umfang verksins. Markmiðið er alltaf að skila fallegri, endingargóðri og vel útfærðri lausn sem stenst væntingar.

Hvort sem um er að ræða minni viðgerð eða umfangsmiklar endurbætur getur þú treyst því að við nálgumst verkefnið af fagmennsku, vandvirkni og virðingu fyrir heimili þínu eða fasteign.

Meistaramenntun og áratuga reynsla

Magnús Hvanndal Magnússon, löggiltur múrarameistari er hægri hönd Jóns Grétars, er löggiltur múrarameistari og hefur haft meistararéttindi frá árinu 2004. Meistarabréfið staðfestir faglega þekkingu hans og réttindi til að reka sjálfstæða starfsemi í múraraiðn og leiðbeina nemendum í faginu. Reynsla Magnúsar og nákvæm vinnubrögð eru mikilvægur hluti af þeirri fagmennsku og verkþekkingu sem MJ Flísalausnir byggir á.